Thursday, 15 July 2010

Surf's up

Erum komin til San Juan Del Sur og thad er mjog ljuft.
Her er mikill hiti, fin strond og endalaust mikid af brimbretta-garuum. Mig langar soldid ad profa ad surfa, en geri samt ekki rad fyrir ad thad verdi ur thvi. Vid verdum her i eina til tvaer naetur og fikrum okkur svo aftur til Managua thar sem planid er ad taka flug til Little Corn Island. Vid erum i bolvudum vandraedum med minniskort og harda diskinn sem eg tok med (tolvukosturinn er svo rosalega misjafn herna) svo baedi thad ad setja myndir a netid og ad geta tekid af fulla minniskortinu er vesen. Eg fer aldrei aftur i ferdalag nema ad vera med amk tvo auka minniskort fyrir myndavelina mina.

Annarst forum vid i fjallgongu i gaer, gengum a eldfjallid Concepción i gaer og forum upp i rumlega 1200 m. Vid erum baedi med sma hardsperrur i dag og eg veit af biturri reynslu ad thad a eftir ad vera mun verra hja mer a morgun :) Sigldum fra Ometepe i morgun og tokum svo straeto til San Juan.

A strondunum her i kring er verid ad taka upp sjovarpsthaettina Survivor, svo tokulidid er med mikid af batum og bilum i baenum. Thad er buid ad loka slatta af strondunum her i kring og thad verda tekin upp tvo "season" i einu.

Vid setjum inn myndir vid fyrsta taekifaeri.

No comments:

Post a Comment