Monday, 31 May 2010

Eldfjallaárið 2010

Það er allt í rugli í Guatemala. Flugvöllurinn er lokaður og svo eru flóð út um allt. :)
Það er reyndar ekki allveg satt: Það er rigningatími í Guatemala og þess vegna er mikil rigning. Fyrsti stormur rigningatímans (Tímabilið fyrir storma og Fellibyli er c.a. frá 1. júní til 30. nóvember), Agatha, fór í gegnum norðvestur hluta Guatemala og bætti við um 50 mm úrkomu. Þess vegna lentu margir í sveitunum í vandræðum og fólk sem býr í lélegum húsum þarf að berjast við flóð og mikinn vind (flestir sem dóu, létust í aurskriðum). Þetta var ekki óvæntur stormur og fólk hafði verið varað við.
Svo er eldfjallið Pacaya farið að gjósa, en það hefur verið aktíft síðan 1965 og það er öskufall sem lokaði flugvellinum. Einn maður dó, en hann var við rætur fjallsins og varð fyrir hraungrjóti.

Ég hef ekkert voðalegar áhyggjur af þessu, við vissum að það yrðu stormar og rigning af og til, en það að flugvöllurinn er lokaður er aftur á móti önnur saga. Vonandi getum við lent í Guatemala city, en ef það gengur ekki eftir, þá fljúgum við bara til Belize eða Hondúras eða eitthvað annað; kosturinn við að vera ekki með neitt plan er að það getur ekkert eyðilagt planið okkar ;)

Thursday, 27 May 2010

Lokaspretturinn


Þá erum við að verða tilbúin (og fyrsta myndin kominn inn)... Ég fór fimm sinnum í apótek í dag (og það eru bara tvö apótek í bænum ;) ) til að ná í síðustu lyfin. Gat fengið malaríulyfið (sé svakalega eftir að hafa lesið um aukaverkanirnar) en Typhus bólusetninguna var erfitt að fá; leit um tíma út fyrir að ég yrði að fara í tvo mismunandi bæi til að fá tvo skamta. En sem betur fer þá reddaðist þetta og ég fæ Typhus bólusetninguna á morgun. Þá vantar mig bara eina sprautu og Þórunn er búin.

Annarst fékk Þórunn soldið skemmtilega gjöf frá LEGO um daginn: Þetta var askja með 6 rauðum 2*4 tappa LEGO kubbur, sjúklega minimalistiskt. En það sem gerði þetta geðveikt var bæklingurinn sem fylgdi: Þar stóð að með þessum sex kubbum (í einum lit, rauðum) væru >900.000.000 tengimöguleikar!!!! SHIT! Fjölhæft leikfang...

Monday, 24 May 2010

Einfalt líf

Í gær fórum við með flesta hlutina okkar í geimsluna; Sjónvarp, föt, dót, eldhúsbúnaður o.þ.h. Svo nú er eftir föt, hjólin okkar og tölvan. Ef ekki væri fyrir allt legoið hennar þórunnar þá væri frekar tómlegt í herberginu okkar.
Á meðan það er frekar ömurlegt að búa svona með ekki neitt, þá var samt léttir að koma hlutunum í geimsluna. Það er ótrúlega fátt sem vantar núna, 5 júní má fara að flýta sér.

Thursday, 20 May 2010

Verkfall

Cabin crewið hjá Brittish Airways er búið að boða verkfall á sama tíma og við eigum flug til Miami :(
Upplýsingasíðan segir samt að flest langflug verði flogin svo við verðum bara að vona það besta.

16 dagar, 13 tímar og 37 mínútur (Ef Eyjafjallajökull leifir)

Þá er komin gisting fyrir fyrstu tvær næturnar. Hostellið er vonandi betra en heimasíðan þeirra ;) , en ég er búinn að lesa marga góða dóma svo ég hef engar áhyggjur.


Thursday, 13 May 2010

Vagabond.

Við erum í lestinni á leiðinni til Köben og ég er allveg kominn í ferðagírinn. Er með bakpokann minn með mér og er að lesa mér til um löndin sem við ætlum að heimsækja. Nú nefni ég þetta með bakpokann því ég er mikið búinn að velta því fyrir mér hvernig vagabond lífið verður. Við munum ekki eiga neitt heimili, enginn ábyrgð og bara brölt um þau lönd sem okkur dettur í hug (erum ekki búinn að plana neitt annað en hvar við sofum fyrstu nóttina og hvernig vivð komumst til og frá miðameríku); soldið eins og Vagabondarnir með barnavagnana sína og bjórkassana sem sjá má á sumrinn hérna í Danmörku. Ég er spenntur.

Norðurströnd Hondúras og Nicaragua vekur mikinn áhuga hjá mér núna, en á allveg eftir að kynna mér El salvador og Costa Riga. Guatemala hljómar mjög spennandi og Belize verður heldur ekkert leiðinlegt. Ég geri ráð fyrir að við förum ekki til Mexíkó né Panama (erum ekki með bólusetningu fyrir Gulusótt sem þarf eiginlega í Panama, svo það er mjög mjög ólíklegt, held ég, að við förum þangað) . Þórunn ætlar að vera abótekari ferðarinnar, svo ég þarf lítið að pæla í lyfjamálum. Mig vantar að fá eina bólusetningu og svo eigum bæði ég og Þórunn eftir að fá gegn typhus. Annarst er allt eiginlega komið. Við erum sennilegast kominn með ferðatryggingu, ætlum aðeins að skoða verð á nokkrum fleyri stöðum, en ef við finnum ekkert þá erum við með "fallbak" tryggingu.

Erum að renna inn á Hovedbanegaarden, svo ég er hættur að blogga.

Viðbót við ferðaáætlunina.

Þá er búið að bóka síðasta flugið í bili.
Þórunn bókaði flug fyrir okkur frá london til Reykjavíkur þann 20. ágúst, svo nú á bara eftir að kaupa flug frá danmörku til íslands, en það verður ekki gert strax.

Sunday, 2 May 2010

Panik

Er kominn í smá paník yfir því hvað er stutt í ferðalagið. Er búinn að vera að gera allskonar lista yfir hvað vantar að redda, hvað vantar að kaupa og svo framvegis.. Úff *-) Mikið ógert.

En, nú er ekkert um annað að ræða en að redda því sem reddað verður og koma sér svo út á flugvöll... :)