Wednesday, 18 August 2010

Thad besta og versta (urdrattur)

Besta...

Bjarki:
  • Ad Kafa
  • Corn Island
  • Jerk Chicken
  • Flor de Caña
  • Lanquin og semuc champey
Thorunn:
  • Ferskir djusar og smoothies
  • Ad ferdast i kjuklingarutu
  • Ad hjalpa litlum skjaldbokum i sjoinn
  • Gladlint og hjalsamt folk
  • Hengirum og ruggustolar

Versta...

Bjarki:
  • F***** frijholes
  • Skeinupappir i ruslafotuna, ekki i klosettid!
  • Moskito flugur
  • 4 tima rutuferd, STANDANDI!
  • Alvopnud logga ad selja kokain a hostelinu okkar
Thorunn:
  • Lok sem haldast ekki a ruminu yfir nottina - Freaking vidbjodur!
  • RISA krabbi i veginum - orugglega 1 m breidur!
  • Israelar og Frakkar - eru bara almennt pirrandi :)
  • Bedbugs
  • Hofudborgirnar: Managua, Tegucigalpa & Guatemala City

Sunday, 15 August 2010

Er madur buinn ad kaupa yfir sig...

...thegar madur er buinn ad kaupa tvo stor rumteppi og eitt litid, heilt maya dress og amk 7 pudaver? Vorum a staersta markadnum i Gvatemala i dag og mer fannst eg vera ad borga faranlega litid fyrir handverksvorur tho svo ad thetta hafi i flestum tilvikum liklegast verid algjort rip off. Endadi audvitad a ad eyda alltof miklu og kaupa alltof mikid og er ekki viss um hvernig vid komum ollu med okkur heim. Er nuna mjog fegin ad hafa ekki keypt rugglustol i Nigaragua eins og eg reyndi lengi vel ad sannfaera Bjarka um ad gera :)
Var ordin mjog othreygjufull a hadegi yrfir ad vera buin ad vera ekki buin ad kaupa neitt ad radi og endadi halfpartin i panikkaupum a sidustu metrunum. Var tho mjog anaegd med mig eftir ad hafa farid i gegnum hlassid sem er i ruminu upp a herbergi.

A markadnum ad reyna ad lata ad lita ekki ut fyrir ad vera jafn despo og eg var :)

3 hjol udir bilnum, en afram skroltir hann tho...

Vid forum i dagsferd i dag fra Chichichestanango til Nebaj sem er djupt inni i fjallaheradinu sem vid erum i. Eg myndi segja ad thad hefdi ekki verid i frasogur faerandi, en thad er bara ekki satt!
Fyrst komum vid okkur ut ad horninu thadan sem rutan for fra Chichi til Qiche (thar sem vid mydnum skipta um rutu og fara til Nebaj) og vorum frekar roleg. En svo, eins og thruma ur heidskyrum himni kemur svo thessi risa daudagildra, sem stundum eru nefndar kjuklingarutur, hlunkandi og hlassandi ser nidur brekkuna og pinku gaur hoppar ut og byrjar ad garga "CHE CHE CHE CHE CHE", sem vid vidum ad thydir "Thessu bill er ad fara til Qiche, drullid ykkur inn ef thid viljid fara med". Vid hlaupum a eftir (thad er sko ekki stoppad! Gaurinn er ad reima rumgrindur, kassa, buenad og annad laust ofan a thaki longu eftir ad allir eru komnir inn og hradinn er kominn yfir 100) og hoppum inn um afturhleran (ja, hoppudum!). Rutan var svo STUTFULL ad enginn gat hreyft sig (eg a myndir) en samt tokst gaurnum samt einhvernveginn ad smyrja ser eftir ganginum og rukka folk.

So far so good!

Thegar her er komid vid i sogunni er allt frekar venjulegt, thetta er eins og venjulega og ekkert spes vid thad. Meira ad segja thegar billin brunar i gegnum hverja >180º beyjuna eftir adra a ofsahrada svo dekkin yskra og billinn hallast eins og turninn i Pisa, tha er allt enntha eins og vid eigum ad venjast.

A medan eg stend og er ad dast ad utsyninu inn i handakrikan a kallunum vid hlidina a mer, brunum vid yfir bru og upp brekku i skarpri beyju.... KADAKLUNK!!!!!! Rutan stodvast og byrjar ad rulla afturabak!!!

Eftir sma bid (madur hefur nu heyrt eins hljod ur theim adur) byrjar folk ad tinast ut og vid fljotum med. Drifskaftid hafdi brotnad i sundur og bilstjorinn var undir ad lata eins og hann gaeti gert vid thetta a stadnum, ef hann bara fengi gaffer tape og jarnvir. Allir voru komnir ur rutunni og thad var eins og ein stor flugleidavel hefdi verid taemd, med ahofn og allt. Svo komu hinar og thessar rutur, pikkudu upp nokkra farthega; sumir pickuparnir toku tvaer tylftir og haegt og rolega for folk ad tynast i burtu. Vid reyndum einusinni ad komast inn i nyja rutu, en thad var bara ekki plass (sem er mikid sagt).
A endanum roltum vid ein upp a fjalsbrun, eins og sannir vikingar, og endudum a thvi ad fa far med okkar einka pickup, thar sem fjolskyldan frammi gaeddi ser a avoxtum og hlogu ad gringounum sem thau hofdu pikkad upp.

En a endanum for dagurinn vel, vid forum a markadinn og aftur heim thar sem vid aetlum ad borda morgunmat a gotustandi og fara i rumid ad sofa. Thvi a morgun bidur okkar staersti markadurinn i Guatemala.

Friday, 13 August 2010

Lokaspretturinn

Vid voknudum i dag a YNDISLEGU hoteli vid Lago Atatilan sem heitir Casa Del Mundo. Gerum rad fyrir ad ferdast eitthvad naestu tvo dagana um "Vestri-halondin" og vera a.m.k. i chichicastenango a sunnudaginn til ad geta farid a markadinn sem a vist ad vera gigatiskt stor. Svo eru eftir adfaranaetur thridjudags og midvikudags sem vid erum ekki allveg viss a, annadhvort verdum vid vid Lago Atatilan eda nalaegt Antigua. Adfaranott fimtudags verdum vid svo pottthett i Antigua og fljugum fra Guatemala City rett fyrir hadegi a fimtudaginn (19.8).

Saturday, 7 August 2010

Malariudagar

Tha erum vid komin til Belize, eda "The British Protectorate of Honduras" eins og thad het adur. Vid forum i dag i hellaferd inn i hellirinn "Actun Tunichil Muknal"(ATM) og thad var frabaert! Skodudum beinagrindur og adrar fornleifar, syntum og klongrudumst. Svo a leidinni til baka ur hellinum heyrdist mikid rask i grodrinum hinum meginn vid anna sem vid gengum medfram; Guidinn okkar sagdi "Heyrdud thid i jaguarnum, hann var ad stokkva ur trenu tharna". Svo vid hofum heyrt i, en ekki sed Jaguar :)
Vid komum hingad i gaer og forum a morgun. Okkur var buid ad langa mikid ad fara i hellirinn en vorum eiginlega buin ad akveda ad fara frekar til Languin. Svo i gaer thegar vid forum fra Flores akvadum vid ad skella okkur hingad i stutt skrepp. Vid gerum rad fyrir ad fara a morgun til Languin, ef vid naum thvi a einum degi, thar sem tvo natturuundur bida okkar, og tritla svo haegt og rolega i attina ad Guatemala City; sem leidir mig ad titli bloggsins:
Vid eigum oft svolitid erfitt med ad fylgjast med hvada vikudagur er. Helgarnar eru meira eda minna eins og virkir dagar og allt gaeti lettilega runnid saman i einn graut. En thar sem vid erum a Malariu lyfjum (fyrirbyggjandi) tha thurfum vid alltaf ad taka thau a thridjudogum og vitum thannig alltaf hvenaer vika er lidin (oft finnst mer eins og eg hafi tekid lyfid tveimur dogum adur, thegar thad er i raun lidin vika). I dag eigum vid bara tvo "Malariudaga" eftir og nu eru bara taepar tvaer vikur thangad til vid lendum i KEF.

Thursday, 5 August 2010

A ferdinni

Hafid thid profad ad ferdast med mini bus sem tekur 12-16 manns i saeti en verid med rumlega 30 farthega? Thad virdist vera standardinn i Guatemla. Svo thegar ekki komast fleiri inn i bilinn hengur folk i rennihurdinni, i stiganum upp a thak eda situr uppi a thaki. Guds se lof fyrir loftslagid i thessu landi svo ad haegt se ad hafa alla glugga opna! :)

Wednesday, 4 August 2010

Tikal

Vid erum nuna komin i nordurhluta Guatemala og forum ad skoda rustirnar i Tikal i morgun (klukkan 04:20!!). Vid erum buin ad vera ad gista i frumskoginum, hoteli vid risa stort stoduvatn og fleiri afskektum stodum svo vid hofum ekki bloggad mikid undanfarid. Eg er buinn ad setja inn myndir fra thvi i dag og hvet ykkur til ad kikja a thaer. Thad er allveg ogerlegt ad segja fra Tikal i stuttu mali, svo eg aetla ad sleppa thvi ;)

Vid eigum nuna einungis eftir tvaer vikur af ferdalaginu og erum ad rembast vid ad na eins miklu og vid getum, en jaframt ad vera ekki ad flyta okkur um of; og thad getur oft verid mjog vandasamt.

Wednesday, 28 July 2010

Esteli

Tha erum vid komin til Esteli og verdum vonandi komin til Guatemala einn af naestu dogunum.
Vid forum fra Little Corn i morgun. Vedrid var buid ad vera megnad allan timan, en i gaer var samt minna frabaert vedur. Svo i morgun var tilvalid ad yfirgefa eyjuna, med himininn fullan af skyjum, sjoinn fullan af oldum og vedurspanna alveg lausa vid sol. Fyrst thurftum vid ad fara med bat(arabat med motor) til Big Corn, thadan med flugvel til Managua og svo med rutu til Esteli. Batsferdin til Big corn var hrikaleg, mikill oldugangur, rok og svo var dregin dukur yfir batinn til ad folk yrdi ekki blautt (yea right). Flestir urdu blautir, thvi folkid yst thurfti ad halda duknum (baedi eg og thorunn satum yst) og svo ef hann lyftist adeins passadi thad yfirleitt med ad thad lenti gusa a batnum og skaut nokkrum litrum inn i midjan batinn. Svo var plass fyrir c.a. 30 mans i batnum, en thegar vid maetum a bryggjuna voru a.m.k. 50 manns ad bida. Vid trodum okkur svo vid fengjum plass (vid thurftum ad na fluginu) og thegar vid settumst helt eg ad vid hefdum fengid sidustu saetin... vid baettust 20 manns!
Svo eftir hrista og blauta ferd yfir hafid lentum vid a Big Corn og tokum leigubil upp a voll. Blaut, hrist og med yfirvigt tjekkudum vid okkur inn og bidum eftir velinni. Med millilendingu i Bluefeilds flugum vid til Managua i einni af hristustu flugferd sem vid hofum farid i. Eftir ad hafa road taugarnar med subway a flugvellinum forum vid ut ur flugstodinni, kvoddum Lynn (Hollensk stelpa sem vid hittum i annad sinn a ferd okkar thegar hun kom til Little Corn daginn eftir ad vid komum) og settumst a bakpokana til ad bida eftir rutunni. Eftir sma bid i STEIKJANDI HITA kom thessi lika fina ruta og vid svafum meira eda minna alla leidina til Esteli. Nuna erum vid buin ad koma okkur fyrir a saemilegu hoteli med kabalsjonvarpi og aetlum ad glapa a imbakassan i kvold.
A morgun aetlum vid svo ad skoda foss her i nagreninu, fara til Somoto og skoda gil thar og finna okkur svo stad til ad gista a. Daginn thar a eftir er planid ad reyna ad na til San Pedro Sula eda jafnvel lengur i att ad landamaerum Guatemala (Erum a leidinni til Puerto Barios og thadan til Livingston).

Sunday, 25 July 2010

Elsa med gulltennurnar

Sma framhald af sogunni um hana Elsu sem fann 2 millj $ a strondinni...
Thad er einn sem ad vid konnumst vid sem ad gistir hja henni og thegar hann kom pruttadi hann verdid a gistingunni nidur i 10 $. Daginn eftir var Elsa sjalf a stadnum og ekki anaegd med ad hann hefdi fengid gistinguna a adeins 10 $ og sagdi ad kofinn vaeri a 25 $ og ad hann gaeti fengid hreysi a bak vid ef hann vildi bara borga 10!
Tha foru thau ad prutta og hun gaf sig nidur i 15 en hann vildi fa theta a 13 sem ad Elsa var ekki tilbuin ad samthykkja svo ad hann byrjadi ad pakka nidur til thess ad flytja sig annad. Og a medan hann var ad pakka nidur var hun ad sopa golfid i kofanum og segja: eg er svo fataek, eg er svo faetaek (med ekkert nema gulltennur i gomnum). Svo thegar hann var a leidinni ut gaf hun sig.
- Hljomar kannski ekki storkostlega fyndid her, en vid erum buin ad hlaeja mikid af thessu.

Friday, 23 July 2010

F i °C

Eg rolti adeins um i morgun og datt inn a bar til ad fa mer eitthvad kalt ad drekka. A medan eg var ad bida eftir kokinu minu, vard mer litid a hitamaeli sem hjekk fyrir innan barinn (undir viftunni!). Eg hef ekki litid a hitamaeli i langan tima og sa ad maelirinn syndi 96 gradur a Farenheit. Til ad breita Farenheit yfir i Celcius tharf madur ad draga 32 gradur fra og margfalda utkomuna med fimm niundu hlutum. svo 96 gradur F eru 35.5°C. Dagurinn i dag er ekki heitasti dagurinn sem vid hofum upplifad her.

Annarst forum vid og bordudum hja konu a strondinni i gaerkvoldi. Hun var jafngomul mer, atti tvo barnaborn og kunni sogur sem eiga eftir ad sitja i mer i soldid langan tima.

Vid erum buin ad setja slatta af nyjum myndum inn a flickr siduna mina og thid getid skodad thad med thvi ad smella a myndirnar her nedarlega til haegri a sidunni. Setjum eins mikid af myndum og vid getum inn, thegar vid getum.

Thursday, 22 July 2010

Ljuft letilif

Eins og er erum vid i viku frii i friinu okkar a litilli Karibahafseyju sem heitir Litla Korn. Eyjan er adeins 1.6 ferkm og er alveg yndisleg.


Her er frumskogur, hvitar strendur, kristalstaer sjor og BARA gott vedur. - Og svo thad mikilvaegasta: ekki mikid af ferdamonnum! Gistum i fabrotnum en mjog huggulegum kofa a strondinni og erum med fallegt koralrif i sundfjarlaegd, en thad stendur svo grunnt ad audvelt er ad kanna thad an thess ad thurfa kofunarutbunad. Fra thvi ad vid komum hingad hofum vid eytt timanum i ad liggja i hengirumi a strondinni og ad kaela okkur i sjonum til skiptis. Erum buin ad setja met i leti og afslappelsi. Fyrsta daginn voru allar myndir sem teknar voru teknar ut um gluggan ur ruminu eda ur hengiruminu og svo gerum vid bara loft high-five til thess ad thufa ekki ad omaka okkur ad otharfa o.s.frv.

Her er eg ekki satt vid ad vera truflud vid lesturinn i hengiruminu :)

Enn i hengiruminu fyrir utan kofann okkar sem vid gistum i.
Heyrdum i gaerkvoldi mjog svo otrulegar sogur. En thad er kona a eyjunni sem a ad hafa fundid tvaer miljonir dollara i tunnu a strondinni (eyturlyfjapeninga kolumbiskra barona) og hirt tha. Hun gaf brodur sinum helminginn af fundinum en sa hafdi vit a ad stinga af og hefur ekki frest af honum sidan, en hun stofnadi veitingastad og hotelreksut a eyjunni og er buin ad kaupa fjolda bygginga a Stora Korni. Her skolar lika einstaka sinnum eyturlyfjasendingum a land og tha er einhver a eyjunni sem finnur gossid, felur thad og selur thad svo aftur "i rettar hendur" thad er kolumbisku eyturlyfjasmyglaranna. En oll strondin og eiginlega Karabiska hafid er eitt stort eyturlyfjasmyglsvaedi. Nu vitum vid ekki alveg hvad af thessu er satt en kannski madur fari einn spassitur og svipist um eftir eins og einni peningasendingu sem hafi skolad her a land :)

I kvold erum vid svo ad fara med fleira folki ad borda rett ad haetti heimamanna (humar og hinar ymsu fisktegundir a platta) vid bal a strondinni.

Thetta er alltsaman of gott til thess ad vera satt :)

Erum i paradis.

Myndir koma a morgun

Friday, 16 July 2010

We want you, we want you!


I september aetlar Bjarki ad stofna Village People tribute band. Ahugasamir gefi sig vinsamlegast fram.

Eldfjallid Conception

Gegnum upp thetta fallega eldfjall i gaer. Akkurat thar sem laufid er vinstra megin a myndinni.
Gengum upp i um thad bil 1200 m haed en eins og er er oleyfilegt ad fara haerra. Thetta er nefnilega virkt eldfjall sem gaus nu sydast um paskana. Thad er reyndar einnig oleyfilegt ad ganga a thad an thess ad vera med vidurkenndum leidsogumanni tho svo ekki se alltaf farid eftir thvi. Mer var t.d. bodid af manni uti a gotu ad fara i ferd upp sem var svo sannarlega ekki leidsogumadur. Otrulegt en satt tha kemur thad nefnilega fyrir ad folk tynist thegar thad gengur a eldfjollin a eyjunni. Okkur fannst thad svolitid skritid hvernig er haegt ad tynast a svona fullkomlega keilulaga fjalli sem er thar ad auki a litilli eyju! En stadreyndin er su ad folk getur villst svo herfilega i frumskoginum og alveg tynt attum, serstaklega thegar hlidarnar eru upp og nidur a vixl og svo hugsanlega hrapad fram af bjargi a endanum. A sidustu manudum hefur thrennt tynst a fjallinu og thar a medal einn heimamadur - sem hafa ekki enntha fundist.
Heimamenn hafa sett upp vida skilti svo thad er augljost hvert a ad halda ef ovaent gos hefst i odruhvoru eldfjallinu.

Her erum vid sveitt og sael a afangastad, leidogumadurinn okkar Luis #2 til vinstri og bretinn Shean til haegri.


Eftir gonguna forum vid ut med leidsogumanninum okkar og odrum gonguhop a fallega strond a eyjunni thar sem ad okkur var kennt ad drekka romm og kok Nica style. Thad var ad sjalfsogdu rommid Flor de Cana sem vard fyrir valinu en thad er framleitt i Nigaragua og er thad besta sem vid hofum smakkad. Adferdin felst i ser ad rommi er helt i eitt glas en kokinu i annad glas med klokum. Svo eru tekin romm-staup og kokid drukkid a eftir. Otrulegt en satt tha var thetta toluvert betra en Cuba libre, allavegana ad minu mati.
Eftir mat og nokkra drykki var svo dansinn kominn a fullt thar sem lokal logreglulid for fremst i flokki.

Thursday, 15 July 2010

Surf's up

Erum komin til San Juan Del Sur og thad er mjog ljuft.
Her er mikill hiti, fin strond og endalaust mikid af brimbretta-garuum. Mig langar soldid ad profa ad surfa, en geri samt ekki rad fyrir ad thad verdi ur thvi. Vid verdum her i eina til tvaer naetur og fikrum okkur svo aftur til Managua thar sem planid er ad taka flug til Little Corn Island. Vid erum i bolvudum vandraedum med minniskort og harda diskinn sem eg tok med (tolvukosturinn er svo rosalega misjafn herna) svo baedi thad ad setja myndir a netid og ad geta tekid af fulla minniskortinu er vesen. Eg fer aldrei aftur i ferdalag nema ad vera med amk tvo auka minniskort fyrir myndavelina mina.

Annarst forum vid i fjallgongu i gaer, gengum a eldfjallid Concepción i gaer og forum upp i rumlega 1200 m. Vid erum baedi med sma hardsperrur i dag og eg veit af biturri reynslu ad thad a eftir ad vera mun verra hja mer a morgun :) Sigldum fra Ometepe i morgun og tokum svo straeto til San Juan.

A strondunum her i kring er verid ad taka upp sjovarpsthaettina Survivor, svo tokulidid er med mikid af batum og bilum i baenum. Thad er buid ad loka slatta af strondunum her i kring og thad verda tekin upp tvo "season" i einu.

Vid setjum inn myndir vid fyrsta taekifaeri.

Monday, 12 July 2010

One bumpy ride!

I gaer og i fyrradag leigdum vid okkur motorhjol og keyrdum um eyjuna Ometepe. Thad er Bjarki keyrdi og eg sat aftan a. Hefdum reyndar getad verid a sitthvoru motorhjolinu og eg bara laert a thad a stadnum eins og einn Israeli (lesist crazy person) sem vid hittum. En hann sagdi ad thad vaeri GEDVEIKT ad leigja motorhjol med girum; "I didn´t know how to ride a bike before, but I learned it here! And one time the tire went up like this and a person on the street had to run AHHHH (eda tha ad "all the persons on the street went like this (kloppudu) Veiii" , vid Bjarki skildum thetta ekki alveg eins)".

Thessi motorhjolaferd er nu varla i frasogur faerandi nema vegna astands veganna sem eru her, og vid vorum a theim betri! - Her attu ad vera myndir og fleiri frasagnir med myndum en thad vrdist ekki aetla ad ganga i thetta skitptid.

A einum stad stoppudum vid til thess ad fa okkur svaladrykkinn Coke Cola en hann er "borinn fram" i poka med klokum eins og eg fekk, en Bjarki kaus gamla matann. Haha. Drykkir sem eru keyptir i gotustodnum eru nefnilega allir afgreiddir i pokum, hvort sem thad eru dyrkkir a floskum eda djus i fotu. Er buin ad komast ad thvi ad thad er til thess ad minnka ruslid a gotunum. - Allar umbudir af mat og drykk sem folk neytir a ferdinni fer beint a gotuna! - Einn leidsogumadurinn okkar i Honduras sagdi ad folk henti frekar rusli a gotuna heldur en i ruslatunnu (tho thad staedi vid hlidina a henni) til thess ad halda ruslatunnunni hreinni. Veit nu ekki hvort ad thad se alveg satt, en thetta er allavegana mikid vandamal her - eins og reyndar svo margt annad.

Thad vaeri svo gaman ad vita hvort thad seu einhverjir ad fylgjast med herna eda hvort ad Hildur se alltaf bara ad endurhlada sidunni :)

Saturday, 10 July 2010

Isla de Ometepe

Thetta var skrifad i fyrradag, en rafmagnid for af rett adur en eg postadi thessu og svo var eg veikur i gaer og Thorunn var upptekin af ad hjukra mer
Vid komum til Ometepe fyrir taeplega klukkutima sidan.
Eftir ad vid forum fra Managua erum vid buin ad vera i Granada, eda allavegana gista thar.
Thann 7. forum vid i dagsferd til Masaya til ad kikja a markadinn, fa okkur ad borda og upplifa hid daglega lif i venjulegum bae. Thad tokst mjog vel, keyptum enn eina hengikoju (vid erum thegar buin ad kaupa tvaer, en thar eru (vonandi) i posti a leid til islands), horfdum a hluta af leiknum og bordudum a matastandi a markadnum. Vid saum lika virki sem er einn kilometra fra adalveginum vid Masaya thar sem utsynid var otrulegt og sagan bak vid virkid var merkileg (hluti af sogu FSNL, of langt til ad fara ut i thad her).
Thegar vid vorum buinn ad skoda virkid roltum vid nidra veg og aetludum ad taka rutuna tilbaka til Granada. Vid vorum rett hja litlu checkpointi sem loggan var med vid vegin og roltum thangad thvi vid heldum ad thad vaeri besti stadurinn til ad na rutunni. En engar rutur stoppudu fyrir okkur!? Svo eftir soldin tima stoppadi ruta adeins lengra fra okkur thar sem kona hoppadi ut og rutan brunadi afram, thratt fyrir ad vid gaefum allskyns merki um ad vid vildum med. Konan rolti i attina ad okkur og spurgdi hvort vid vaerum ad bida eftir rutunni. Hun sagdi okkur ad ruturnar vildu ekki stoppa nalaegt loggunum og eftir ad vid roltum 100 metra i burtu fra loggunum stoppadi fyrsta rutan sem keyrdi framhja.

I gaer skodudum vid svo litlar eyjar sem eru nalaegt Granada og bordudum kokoshnetur og snaeddum heimatilbuinn mat.

I dag forum vid svo fra hotelinu okkar (ur brudar/luksussvitunni, en thad er allt onnur saga) og tokum rutu til Rivas sem var allgjort aevintyri, vantadi bara haenur ad verpa eggjum til ad gera thetta fullkomid, og komum okkur svo til nagranna baearinns, San Jorge. Thadan tokum vid batinn (lesid:pramman) til Ometepe. Thad var magnad ad sigla ad ometepe; eyjan lytur mest ut fyrir ad vera risabrjostahaldari ur grjoti og adkoman minnir einna helst a adkomuna ad hornstrondum, med skyjum og graenum sjo. Svo thegar madur kemur naer koma palmatre og strandir i ljos.

Monday, 5 July 2010

Heljarinar ferdalag

I fyrradag forum vid fra La Ceiba til Tegucigalpa. Svo forum vid i gaer fra Tegucigalpa til Mangua i Nigaragua og forum a morgun afram i attina ad Grenada. Eg er fyrir mitt leiti allveg ad drepast ur threytu, thvi thetta eru ansi langar ferdir.
Lofa ad skrifa betur fljotlega og ad setja myndir inn vid fyrsta taekifaeri.

Friday, 2 July 2010

Sidasti dagur nedansjavar, i bili.

I fyrradag var sidasti dagurinn okkar nedansjavar, i bili allavegana. Eg var buinn ad vera sma kvefadur og gat thessvegna ekki kafad, en Thorunn var hress svo hun tok tvo dive thann daginn. Thegar folk var ad koma upp ur eftir seinna dive-id hofdu nokkrir heyrt i hofrungum og skipstjorinn hafdi sed tha, svo vid elltum tha. Eftir sma eltingaleik var ollum skipad ad setja a sig froskalappir og kafagleraugu (med loftrori) og svo var okkur hennt ut i sjoinn og skipstjorinn sigldi i burtu. Vid kepptumst oll vid ad synda i attina ad hofrungunum og skipstjorinn styridi batnum thannig ad hann rak tha i attina ad okkur (their fylgja batnum ef hann siglir rett hja theim). Vid gatum ekki tekid myndir af thvi, en vid syntum med hofrungunum og vorum ekki meira en 2 metra fra theim! Thad var magnad! Eg tok thetta video thegar vid komum upp i batinn aftur og vorum ad sigla heim a leid:

Eg veit ad thetta er ekki allveg besta myndatakan, en eg akvad samt ad skella thvi med.

Nu erum vid a leidinni til La Ceiba, verdum thar eina nott og svo erum vid a leidinni til Nigaragua.

Tuesday, 29 June 2010

Kofun, utila o.fl.

Vid erum nuna a littlu skeri rett hja utila eyjunni og vorum ad ljuka vid PADI kofunarprofid okkar. Forum nidur a 18 metra dypi i dag og klarudum skriflega profid.
Herna ma sja video af thorunni ad fara i vatnid i dag:

Her hef eg sett tvo kort (sem eru i somu hlutfollum) svo thid getid borid saman staerdina a thessu (profid ad zooma inn og paelid i thvi ad her bua um 600 manns!!! (og thad eru 6!!! kirkjur her!!!)):
Utila:

Sja Starra kort
Tjornin i Reykjavik:

Sja a staerra korti

Friday, 25 June 2010

Pobbarolt

I gaerkvoldi forum vid a tvo eftirminnilega bari herna a eyjunni. Fyrri barinn var ad mestu leiti uppi i tre og algjor aevintyraheimur. Hann er nr. 4 af bestu borum i heiminum skv. Lonley planet og einhverjum fleri sidum. Thvi midur var myndavelin ekki med en eg fekk tvaer myndir lanadar af netinu.



Hinn stadurinn var svo sem ekki merkilegur nema hvad vardar klosettadstoduna. Vid vorum nefnilega buin ad vera ad velta thvi fyrir okkur hvert frarennslid fer, thad er ad segja hvort ad thad faeri beint i sjoinn eda vaeri leitt e-d ut a haf. Thad kom sem sagt i ljos tharna ad thvi er dompad beint i sjoinn, en klosettid var bara flisalogd hola beint i sjoinn! Er nuna mjog thakklat fyrir ad vid erum ad fara a annan stad a eyjunni til thess ad laera kofun, en allir sem laera kofun her taka fyrstu prufuna i hofninni thar sem urgangurinn fra skemmtistodunum lendir.

Vont vedur, gott vedur og paradis.

Eins og gefur ad skilja, tha hofum vid ekkert tima til ad vera ad blogga eda setja myndir a netid a hverjum degi; vid erum t.d. i dag buinn ad vera mjog upptekin:
Forum a faetur og bordudum morgunmat. Eftir thad forum vid i bankann, tokum ut penining, kiktum i bud og skelltum okkur i sjoinn. Svo forum vid ad horfa a danmorku skita i braekurnar (afsakid ordalagid), bordudum hadegismat og skelltum okkur svo i sjoinn(eg)/solbad(thorunn). Sidan skoludum vid af okkur seltuna og erum nuna a leidinni i kvoldmat.

Svo eins og sja ma, tha hofum vid ekkert tima til ad vera ad kikja a netid
;)

En svo ad odru:
Vedrid her i karabiskahafinu er mjog stabilt og gott (her rignir t.d. ekki alla daga eins og annarstadar i midameriku), nema thegar thad koma stormar. Vid fylgjumst frekar vel med vedurspanni til ad vera ekki ad plana eitthvad sem krefst gods vedurs. Vid erum ekkert med einhverja hysteriu, en erum medvitud og munum t.d. ekki gista a einhverju hoteli ur pappakossum ef vid sjaum ad vedurspain er ekki god, heldur a einhverju storu steyptu hoteli med kjallara.
Fyrir ykkur sem smelltud a hlekkin her ad ofan, aettud thid ad sja (ef thid gerid thad fljotlega eftir ad eg posta thessu) rautt svaedi sem er a leidinni til okkar (thad eru utskyringar nedst a myndinni og ef thid farid med musina yfir skyggd svaedi an thess ad smella, koma fleiri upplysingar fram). Akkurat nuna er stormur a leidinni i att ad okkur, sem er ekki nogu kroftugur til at vera flokkadur sem fellibylur. Veikasti fellibylurinn (thad eru 5 flokkar) er stormur med vindhvidur fra ad minnsta kosti 33 m/s (samkvaemt minum utreikningum, retta talan er 119 km/klst), svo thessi stormur er allavegana minni en thad. Heimamenn eru allir vodalega rolegir yfir thessu og segja ad thetta muni lang sennilegast ekki lenda her, og ad thetta verdi ekkert mal, eina sem muni gerast er ad thad rignir adeins.

Vid bloggum aftur a morgun og skellum tha vonandi einhverjum myndum inn.

Sunday, 20 June 2010

Myndir

Vid erum oft i mjog lelegum tolvum og thad er mjog erfitt ad setja goda utskyringu vid myndirnar, en vid erum ad reyna ad setja inn myndir eftir thvi sem taekifaeri gefast. Thid getid sed nyustu myndirnar her nedar til haegri, eda farid hingad og fylgst med.

Svo er komid eitt video inn , kikjid a thad.

Mayarústir, ádur á kafi í frumskóginum

I fyrradag fórum vid og skodudum Coban ruinas (Honduras). Thaer eru ekki thaer miklfenglegustu sem fundist hafa, en heimamenn líkja Tikal fundinum (staersti í Guatemala) vid New York en thessum vid París af thví ad hér á víst ad hafa verid vagga menningar og lista...
Tók thessa mynd af 1 quetsales sedli (15 kr) sem er nákvaem eftirmynd af rústunum. Vinstra horn sedilsins er thar sem fótboltavollur var (já, thessi litla raema!). Thrátt fyrir ad vollurinn sé mjog lítill á okkar maelikvarda er hann sá annar staersti sem fundist hefur í Maya heiminum. Talid er ad tvo fimm manna lid hafi leikid á móti hvort odru og adeins mátt nota oxl, olnboga og mjadmir. Lidin fengu svo stig fyrir ad hitta i stein"hofud" til hlidar á vellinum (thrjú efst í hallanum til haegri og thrjú til vinstri). Eftir leika var svo fyrirlida vinningslidsins fórnad fyrir gudina! - Tjahh, stundum er bara gott ad vera lúser ;)
Annars er ekki skrítid thó ad sidir og venjur Mayanna séu súrar af thví ad leidtogarnir reyktu e-d funny stuff, bordudu sveppi og sleiktu froska!

Friday, 18 June 2010

Kæru vinir og vandamenn

Vid erum nuna i Tela i Honduras og vid saum karabíska hafid í fyrsta skipti í dag. Vid hofum ákvedid ad setja hér ad og ætlum aldrei ad flytja hédan. Ef thid viljid heimsækja okkur, getid thid flogid til San Pedro Sula og tekid strætó thadan til Tela. ;)

Thursday, 17 June 2010

Forum strondina a morgun.

A morgun aetlum vid ad fara fra Copan Ruinas til annadhvort Tela eda Ceiba, sennilegast Tela. Tha verdum vid komin a "carabian" strond. :) Bloggum betur og hendum inn myndum thegar vid komumumst i betra internet samband.

Annarst er Copan Ruinas mjog flott og vid erum a leidinni ad rustunum, svo vid aettum ad hafa einhverjar godar myndir af thvi naest thegar vid bloggum.

Hae hò jibbì jei og jibbì jey, thad er kominn 17. junì



Tuesday, 15 June 2010

Svekktur, en bara pinu

Nu aettum vid ad vera ad huka i rutu a leidinni til Honduras en thar sem ferdaskrifstofan kludradi midapontunni okkar, forum vid ekki fyrir en a morgun. Vid erum buin ad tjekka okkur inn a hostel og aetlum ad vera thar thangad til a morgun. Forum til honduras klukkan 4:00 i fyrramalid.

Monday, 14 June 2010

Hitt og thetta

Um helgina og i dag er buid ad rigna ogedslega mikid. Vid forum i hjolaferd um nagrennid a sunnudaginn og thad var gedveikt (myndir koma seinna). A sunnudaginn keyptum vid lika mida i rutu a thridjudaginn til Copan Ruinas i Honduras. Vid leggjum af stad her a morgun, thridjuag, strax erftir skola og tad tekur 6 tima, svo vid verdum i copan ruinas um 7 leitid annad kvold. Vid erum ekki komin med gistingu, en aetlum bara ad finna eitthvad thegar vid komum thangad.

Vid erum baedi eins og blettatigrar af mosquito bitum og eg kenni gardinum sem er fyrir utan gluggan okkar um. Hann er pinulitill og i algjorri oraekt. Vid getum nefnilega ekki lokad glugganum alveg :(

Thad verdur gott ad komast i betra vedur (meiri hita og minni rigningu) og helst eitthvert thar sem svefnadstadan er ekki svo rosalega rok (til ad minnka likur a biti).

Saturday, 12 June 2010

Stefnubreiting

Vegna thess ad stormurinn Agatha er buin ad eidileggja nokkra vegi vid Lago Atatilan og lengra i attina ad Tikal, sem er su leid sem vid aetuludum kannski ad fara, hofum vid akvedid ad fresta thvi thangad til i lok ferdarinnar (svo thad verdi amk buid ad gera vid flesta vegina) og skella okkur kannski til Honduras nuna i stadinn (thetta er allt i "sennilegast" fasa nuna, verdum buin ad akveda okkur endanlega fyrir thridjudaginn). Stefnan er i fyrstu atrenu sett a Copan Ruinas, sja kort nedst.
Annarst erum vid buin ad eiga rolegan Laugadag, bokudum fjallahjolaferd a morgun og festumst inni a kaffihusi i 4 tima i dag vegna rigningar (hefdum allveg getad farid, en hefdum ordid gegnum blaut).

View Copa Ruinas a staerra korti

Friday, 11 June 2010

Matur

Vid vorum ekki buin ad vera i Guatemala i tvo solarhringa thegar vid vorum buin ad drekka gos ur krana med klokum (pottthett allt kranavatn), borda samloku med kali, borda is (mjolkurvorur) og fullt af avoxtum (reyndar allir skraeldir). Thad er ad segja ovart buin ad profa allt sem vid aetludum ad reyna ad fordast allavegana fyrstu vikuna. Fyrir utan thetta erum vid buin ad fa fjolmorg moskitobit a fotleggina en sem betur fer komumst vid ad thvi ad malaria er ekki landlaeg i Guatemala, allavegana ad sogn innfaeddra. Jaeja, okkur hefur allavegana ekki ordid meint af enntha svo eg er alvarlega ad hugsa um ad fara ad profa e-d af matnum a utistondunum :o

Erum reyndar i fullu faedi hja fjolskyldunni, thar sem vid hofum fengid yndislegan mat hingad til. Aftur a moti er bara kalt vatn i husinu svo ad thad ad hoppa i stutta sturtu hefur fengid nyja merkingu...

Helgarfri

Tha er komin helgi og pasa i tungumalakennslunni.... eins gott... fjorir timar a dag er allveg nog finnst mer (thvi svo talar madur lika spaensku restina af deginum). HM er lika byrjad og planid er ad na leik um helgina. A manudaginn er svo kennsla aftur (sidasti dagurinn er a thridjudaginn). Thad var aetlunin ad vera herna og laera spaensku i eina viku og halda svo afram ad lake atatilan sem er i nord austur hedan. En thar sem Storumurinn Agatha for her um og eydilagdi allt fyrir nokkrum vikum, tha aetlum vid ad endurmeta thetta allt nuna um helgina. Her er sem betur fer soldid "kalt" og hitinn fer ekkert mikid haerra en 26-27 C thar sem vid erum, en thad er mun heitara annarsstadar sem vid aetlum :)

Thursday, 10 June 2010

Jetlag

Eftirverkanirnar af langa ferdalaginu hingad hafa meiri ahrif a mig en mig hefdi grunad. Eg er ad drepast ur threitu um niu leitid og get ekki sofid lengur en til klukkan 4 :(
Planid er i dag ad halda siesta; sofa i tvo tima eftir hadegismat og vona ad eg thrauki lengur i kvold. Ef thad gengur er eg ad vona ad eg vakni ekki aftur klukkan fjogur i fyrramalid.
Kann einhver onnur god rad vid Thotuthreitu?

Wednesday, 9 June 2010

¿No Habla?

I dag byrjudum vid i Spaensku skola. Thad var frekar hart session ad byrja 4 tima stifa kennslu i dag. Thad er einn kennari fyrir hvern nemanda, og thetta er otrulega pro. Vid forum baedi i malfraedi og ordaforda. Her er mynd af thorunni i skolanum sem eg tok af verondinni a barnum sem er vid hlidina a (Allir leikirnir i HM verda syndir thad, mjog mikilvaegt).
Svo tjekkudum vid ut af hostelinu okkar i dag og erum nuna komin i heimagistingu. Vid erum med einkaherbergi med sturtu og klosetti, allgjor luxus. Forum thangad beint eftir kennsluna i dag og bordudum hadegismat. Thau tala enga ensku og vid saralitla spaensku, svo hadegismaturinn var frekar hljodlatur.

Tuesday, 8 June 2010

Myndir fra tvhi i dag

(smellid a myndirnar til ad staekka thaer)
Thorunn i grillinu, hostelid okkar er ad hluta til thaklaust! Sumstadar er buid ad setja yfirbreidslu, annarstadar er haegt ad njota solarinnar.

Bjarki kaus skuggann med hostel-hundinum

Thad var ekki skritid tho svo ad vid lentum i erfidleikum med ad finna pleisid i gaerkvoldi thegar okkur tokst ad ganga fjorum sinnum framhja Mc Donalds i dag an thess ad taka eftir thvi!

la antigua guatemala

Tha erum vid lennt og buin ad sofa fyrstu nottina okkar i Guatemala.
Vid voknudum klukkan 6 manudagsmorgun og forum ut a voll. Eftir almennilegan morgunmat a Heathrow flugum vid til Miami.
Thegar vid komum til Miami vissum vid ekki allveg hvad vid aettum ad gera, thad voru nefnilega taepir 6 timar i naesta flug. Vid akvadum ad kikja a hvad thad taeki langan tima ad fara inn i bae, en thegar vid komum ut ur flugstodinni runnu a okkur 2 grimur :) Hitinn var rett um 100 F, eda 37 C og solin var vangefid sterk. Eftir nokkurraa minutna umhugsun og val a milli thess ad taka leigubil inn i bae eda straeto, fludum vid aftur inn i flugstodina og heldum okkur thar.
Fluginu okkar til Guatemala seinkadi adeins, thvi flugvelin lennti adeins of seint, en svo thegar vid attum ad fara um bord var flugvellinum lokad vegna thrumuvedurs sem gekk yfir. Fluginu okkar til Guatemala seinkadi sem sagt um tvo tima og vid lenntum thvi ekki i Guatemala City fyrir en klukkan 10.
Eftir 40 minutna leigubilaferd i gegnum allskonar hverfi i Guatemala City komum vid til Antigua. Okkur gekk sma brosuglega ad finna Hostelid, en eftir ad hafa runtad um baeinn (i rauninni bara somu tvaer goturnar nokkru sinnum) fundum vid Hostelid og eftir rumlega solahrings ferdalag var kominn svefntimi.

Mig langar ad fara hingad a morgunn og setja inn einhverjar myndir, svo vonandi verda einhverjar myndir komnar inn a morgun.

Sunday, 6 June 2010

Godur solarhringur i London

Thad sem stendur upp ur er leigubilstjori sem kalladi okkur Lovi og Gov og svo Harrods. O mae, er eg ad fara aftur i Harrods vid fyrsta taekifaeri! Byrjadi a thvi ad skoda matvorurnar thar sem mig langadi helst ad smakka a ollu. Bara verst hvad thad er opraktsikt ad kaupa e-d til thess ad taka med til thess ad eiga. Thar a eftir rombudum vid svo inn i "Egypskan rullustiga" thar sem madur trilladi upp vid undirsong operusongkonu sem stod a svolum ut a ganginum. Jaeja, thid vissud kannski af thessu sum, en mer fannst thetta allt ferlega fyndid. Nu erum vid svo komin aftur upp a hotel ad undirbua okkur fyrir langan dag a morgun.

Saturday, 5 June 2010

Kennileiti

Kortið sýnir staðsetningu alþjóðaflugvallarins, hvar eldfjallið eldspúandi er og hvar við ætlum að byrja ferðina.


View Ferðalag #2 á stærra korti

Friday, 4 June 2010

Thursday, 3 June 2010

Pökkun

Þá eru öll flug staðfest og engin truflun virðist verða á neinum brottförum. Við vorum að koma úr bíó og núna blasir við kaldur raunveruleikinn; við eigum eftir að pakka :-s

Ég er búinn að pakka upp og niður nokkru sinnum í þessari viku og er kominn með allt af því sem var á pökkunarlistanum mínum nema millistikki fyrir raftæki. Geri samt bara ráð fyrir því að það verði keypt á einhverjum flugvelli, nenni ekki allveg að gera mér ferð fyrir það.

Við pökkum svo bara öllu sem ekki fer í bakpokann í kassa á morgun og förum með það í geimsluna á laugardaginn...
Við eigum flug fra Billund á laugardagskvöldið klukkan 22 en þurfum sem sagt að koma við í geymslunni á leiðinni út á völl. Við höfum NÓGAN tíma, en er samt viss um að tíminn á eftir að líða fljótt þennan dag.
Langar að prófa hvernig er að innbinda kort í bloggið, svo hér er yfirlit hvar hvað er hér á jótlandi:


Monday, 31 May 2010

Eldfjallaárið 2010

Það er allt í rugli í Guatemala. Flugvöllurinn er lokaður og svo eru flóð út um allt. :)
Það er reyndar ekki allveg satt: Það er rigningatími í Guatemala og þess vegna er mikil rigning. Fyrsti stormur rigningatímans (Tímabilið fyrir storma og Fellibyli er c.a. frá 1. júní til 30. nóvember), Agatha, fór í gegnum norðvestur hluta Guatemala og bætti við um 50 mm úrkomu. Þess vegna lentu margir í sveitunum í vandræðum og fólk sem býr í lélegum húsum þarf að berjast við flóð og mikinn vind (flestir sem dóu, létust í aurskriðum). Þetta var ekki óvæntur stormur og fólk hafði verið varað við.
Svo er eldfjallið Pacaya farið að gjósa, en það hefur verið aktíft síðan 1965 og það er öskufall sem lokaði flugvellinum. Einn maður dó, en hann var við rætur fjallsins og varð fyrir hraungrjóti.

Ég hef ekkert voðalegar áhyggjur af þessu, við vissum að það yrðu stormar og rigning af og til, en það að flugvöllurinn er lokaður er aftur á móti önnur saga. Vonandi getum við lent í Guatemala city, en ef það gengur ekki eftir, þá fljúgum við bara til Belize eða Hondúras eða eitthvað annað; kosturinn við að vera ekki með neitt plan er að það getur ekkert eyðilagt planið okkar ;)

Thursday, 27 May 2010

Lokaspretturinn


Þá erum við að verða tilbúin (og fyrsta myndin kominn inn)... Ég fór fimm sinnum í apótek í dag (og það eru bara tvö apótek í bænum ;) ) til að ná í síðustu lyfin. Gat fengið malaríulyfið (sé svakalega eftir að hafa lesið um aukaverkanirnar) en Typhus bólusetninguna var erfitt að fá; leit um tíma út fyrir að ég yrði að fara í tvo mismunandi bæi til að fá tvo skamta. En sem betur fer þá reddaðist þetta og ég fæ Typhus bólusetninguna á morgun. Þá vantar mig bara eina sprautu og Þórunn er búin.

Annarst fékk Þórunn soldið skemmtilega gjöf frá LEGO um daginn: Þetta var askja með 6 rauðum 2*4 tappa LEGO kubbur, sjúklega minimalistiskt. En það sem gerði þetta geðveikt var bæklingurinn sem fylgdi: Þar stóð að með þessum sex kubbum (í einum lit, rauðum) væru >900.000.000 tengimöguleikar!!!! SHIT! Fjölhæft leikfang...

Monday, 24 May 2010

Einfalt líf

Í gær fórum við með flesta hlutina okkar í geimsluna; Sjónvarp, föt, dót, eldhúsbúnaður o.þ.h. Svo nú er eftir föt, hjólin okkar og tölvan. Ef ekki væri fyrir allt legoið hennar þórunnar þá væri frekar tómlegt í herberginu okkar.
Á meðan það er frekar ömurlegt að búa svona með ekki neitt, þá var samt léttir að koma hlutunum í geimsluna. Það er ótrúlega fátt sem vantar núna, 5 júní má fara að flýta sér.

Thursday, 20 May 2010

Verkfall

Cabin crewið hjá Brittish Airways er búið að boða verkfall á sama tíma og við eigum flug til Miami :(
Upplýsingasíðan segir samt að flest langflug verði flogin svo við verðum bara að vona það besta.

16 dagar, 13 tímar og 37 mínútur (Ef Eyjafjallajökull leifir)

Þá er komin gisting fyrir fyrstu tvær næturnar. Hostellið er vonandi betra en heimasíðan þeirra ;) , en ég er búinn að lesa marga góða dóma svo ég hef engar áhyggjur.


Thursday, 13 May 2010

Vagabond.

Við erum í lestinni á leiðinni til Köben og ég er allveg kominn í ferðagírinn. Er með bakpokann minn með mér og er að lesa mér til um löndin sem við ætlum að heimsækja. Nú nefni ég þetta með bakpokann því ég er mikið búinn að velta því fyrir mér hvernig vagabond lífið verður. Við munum ekki eiga neitt heimili, enginn ábyrgð og bara brölt um þau lönd sem okkur dettur í hug (erum ekki búinn að plana neitt annað en hvar við sofum fyrstu nóttina og hvernig vivð komumst til og frá miðameríku); soldið eins og Vagabondarnir með barnavagnana sína og bjórkassana sem sjá má á sumrinn hérna í Danmörku. Ég er spenntur.

Norðurströnd Hondúras og Nicaragua vekur mikinn áhuga hjá mér núna, en á allveg eftir að kynna mér El salvador og Costa Riga. Guatemala hljómar mjög spennandi og Belize verður heldur ekkert leiðinlegt. Ég geri ráð fyrir að við förum ekki til Mexíkó né Panama (erum ekki með bólusetningu fyrir Gulusótt sem þarf eiginlega í Panama, svo það er mjög mjög ólíklegt, held ég, að við förum þangað) . Þórunn ætlar að vera abótekari ferðarinnar, svo ég þarf lítið að pæla í lyfjamálum. Mig vantar að fá eina bólusetningu og svo eigum bæði ég og Þórunn eftir að fá gegn typhus. Annarst er allt eiginlega komið. Við erum sennilegast kominn með ferðatryggingu, ætlum aðeins að skoða verð á nokkrum fleyri stöðum, en ef við finnum ekkert þá erum við með "fallbak" tryggingu.

Erum að renna inn á Hovedbanegaarden, svo ég er hættur að blogga.

Viðbót við ferðaáætlunina.

Þá er búið að bóka síðasta flugið í bili.
Þórunn bókaði flug fyrir okkur frá london til Reykjavíkur þann 20. ágúst, svo nú á bara eftir að kaupa flug frá danmörku til íslands, en það verður ekki gert strax.

Sunday, 2 May 2010

Panik

Er kominn í smá paník yfir því hvað er stutt í ferðalagið. Er búinn að vera að gera allskonar lista yfir hvað vantar að redda, hvað vantar að kaupa og svo framvegis.. Úff *-) Mikið ógert.

En, nú er ekkert um annað að ræða en að redda því sem reddað verður og koma sér svo út á flugvöll... :)

Friday, 30 April 2010

Fyrstu skrefin

Í dag voru tekin fyrstu skrefin í ferðaundirbúningnum:
  • Við keyptum flugmiða frá Billund (á Jótlandi, rétt hjá þar sem við búum núna) til London þann 5 júní.
  • Við bókuðum hótel í London frá 5. júní til 7 júní.
  • Við keyptum flugmiða frá London til Guatemala City þann 7 júní með millilendingu í Miami í Flórída.
  • Við keyptum flugmiða frá Guatemala City til London þann 19 - 20 ágúst (brottför 19. lendum 20.) með millilendingu í Miami í Flórída.
  • Við eigum eftir að kaupa miða frá London til Reykjavíkur þann 20. ágúst og miða frá Reykjavík til Danmerkur fyrir 5. september.

Frekar leiðinlegt póst, en langaði bara að setja ferðaáætlunnina inn á undan öllu öðru.