Thursday, 13 May 2010

Vagabond.

Við erum í lestinni á leiðinni til Köben og ég er allveg kominn í ferðagírinn. Er með bakpokann minn með mér og er að lesa mér til um löndin sem við ætlum að heimsækja. Nú nefni ég þetta með bakpokann því ég er mikið búinn að velta því fyrir mér hvernig vagabond lífið verður. Við munum ekki eiga neitt heimili, enginn ábyrgð og bara brölt um þau lönd sem okkur dettur í hug (erum ekki búinn að plana neitt annað en hvar við sofum fyrstu nóttina og hvernig vivð komumst til og frá miðameríku); soldið eins og Vagabondarnir með barnavagnana sína og bjórkassana sem sjá má á sumrinn hérna í Danmörku. Ég er spenntur.

Norðurströnd Hondúras og Nicaragua vekur mikinn áhuga hjá mér núna, en á allveg eftir að kynna mér El salvador og Costa Riga. Guatemala hljómar mjög spennandi og Belize verður heldur ekkert leiðinlegt. Ég geri ráð fyrir að við förum ekki til Mexíkó né Panama (erum ekki með bólusetningu fyrir Gulusótt sem þarf eiginlega í Panama, svo það er mjög mjög ólíklegt, held ég, að við förum þangað) . Þórunn ætlar að vera abótekari ferðarinnar, svo ég þarf lítið að pæla í lyfjamálum. Mig vantar að fá eina bólusetningu og svo eigum bæði ég og Þórunn eftir að fá gegn typhus. Annarst er allt eiginlega komið. Við erum sennilegast kominn með ferðatryggingu, ætlum aðeins að skoða verð á nokkrum fleyri stöðum, en ef við finnum ekkert þá erum við með "fallbak" tryggingu.

Erum að renna inn á Hovedbanegaarden, svo ég er hættur að blogga.

1 comment:

  1. Fín síða :) Hlakka til að fylgjast með ævintýrum ykkar. Vá hvað það er stutt í brottför!

    ReplyDelete