Það er reyndar ekki allveg satt: Það er rigningatími í Guatemala og þess vegna er mikil rigning. Fyrsti stormur rigningatímans (Tímabilið fyrir storma og Fellibyli er c.a. frá 1. júní til 30. nóvember), Agatha, fór í gegnum norðvestur hluta Guatemala og bætti við um 50 mm úrkomu. Þess vegna lentu margir í sveitunum í vandræðum og fólk sem býr í lélegum húsum þarf að berjast við flóð og mikinn vind (flestir sem dóu, létust í aurskriðum). Þetta var ekki óvæntur stormur og fólk hafði verið varað við.
Svo er eldfjallið Pacaya farið að gjósa, en það hefur verið aktíft síðan 1965 og það er öskufall sem lokaði flugvellinum. Einn maður dó, en hann var við rætur fjallsins og varð fyrir hraungrjóti.
Ég hef ekkert voðalegar áhyggjur af þessu, við vissum að það yrðu stormar og rigning af og til, en það að flugvöllurinn er lokaður er aftur á móti önnur saga. Vonandi getum við lent í Guatemala city, en ef það gengur ekki eftir, þá fljúgum við bara til Belize eða Hondúras eða eitthvað annað; kosturinn við að vera ekki með neitt plan er að það getur ekkert eyðilagt planið okkar ;)
No comments:
Post a Comment